17. júní ostabakki
- Helga Gunnarsdottir
- Jun 16
- 1 min read
Hæ hó og jibbí jei það er kominn 17. júní og því ber að fagna. Ostabakki sem lítur út eins og íslenski fáninn í tilefni dagsins.
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn

Innihald í hvítau línurnar:
Höfðingi
Gull ostur
Dala hringur
Mozzarella kúlur
kex
Innihald í rauðu línuna:
Jarðaber
Rauð paprika
Litlir tómatar
Parma skinka
Innihald í bláu kassana:
Vínber
Bláber
Plómur
Döðlur
Bláberjasulta í glasi
Rúsínur
Sprettur
Byrjið á því að finna bakka eða bretti sem er ferhyrnt. Einnig hægt að nota stóran kringlóttan bakka og nota þá ferhyrningslaga bökunarpappír undir. Ég hvet ykkur til að nota ímyndunaraflið og nota það grænmeti og ávexti sem ykkur dettur í hug.
Svo er bara að hefjast handa við að skera niður ávextina og ostana. Ég byrjaði á að gera rauðu línuna með jarðaberjum, tómötum, papriku og parma skinku. Skar svo niður ostana og raðaði þeim sitt hvoru megin við rauða krossinn ásamt kexinu. Að lokum var svo að fylla inn í bláu kassana.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

コメント