top of page

Vefja með ofnbökuðum grillosti

  • May 12
  • 1 min read

Eins og með allar góðar vefjur þá er alltaf jafn erfitt að loka þeim þegar innihaldið er gott. Hér erum við með ofnbakaðan grill- og pönnuost í vefjunni ásamt grænmeti og jógúrtsósu.


Vefjan sem ég er með eru próteinpizzubotnar en einnig er sniðugt að nota pítubrauð eða venjulegar þunnar vefjur.


Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn.


Innihald:

1 grill- og pönnuostur frá MS

1 - 2 msk olía

1 tsk cummin

1 tsk kóríander krydd

1 tsk svartur pipar

1 tsk hvítlaukskrydd

1 tsk kanill


Innihald í vefjur:

kál

gúrka

tómatar

rauðlaukur


Innihald í 4 vefjur:

10 g lyftiduft

140 g hveiti

230 g hreint Ísey skyr


jógúrtsósan:

200 g grísk jógúrt frá Gott í matinn

1 -2 hvítlauksrif

1 tsk svartur pipar

safi úr hálfri límónu


Þú byrjar á því að búa til brauðin. Lyftiduftið, hveitið og skyrið sett saman í skál og hnoðað saman, deiginu skipt í 4 parta, flatt út þunnt í 4 hringlaga brauð og sett á bökunarpappír. Bakað við 180 gráður í 11-13 mínútur í blástursofni.


Á meðan er grillosturinn skorinn í sneiðar með ostaskera, sett í skál ásamt olíunni og kryddað. Ostsneiðunum er svo raðað á bökunarpappír og passið að láta sneiðarnar ekki liggja ofan á hvor annarri. Osturinn er bakaður við 180 gráður í 13-15 mínútur.


Á meðan er jógúrtsósan útbúin og grænmetið skorið niður.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



 
 
 

Comments


bottom of page