top of page

Bounty döðlu bitar

  • Jun 8
  • 1 min read

Einstaklega góðir eftirrétta bitar sem passa vel með kaffinu eða í eftirrétt.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við heildsöluna Nathan.

25-30 döðlur 

110 g grísk jógúrt 

50 g QNT próteinduft með vanillubragði

60 g kókosmjöl

100 g Valor 70% sykurlaust súkkulaði


Þú byrjar á því að blanda saman í skál, grískri jógúrt, QNT próteinduftinu og kókosmjölinu. Á sama tíma er sniðugt að byrja að bræða súkkulaðið. Döðlurnar eru teknar í tvennt og steinninn tekinn úr. Próteinblandan er sett á hverja döðlu og að lokum er hver daðla húðuð með bræddu súkkulaði.


Það er einnig sniðugt að kæla döðlurnar áður en þær eru húðaðar með súkkulaðinu.


Gott að geyma bitana í kæli eða frysti.


Næring í 100 g

Kolvetni: 32,9 g

Prótein: 11,9 g

Fita: 15,8 g

Trefjar: 8,8 g


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




 
 
 

Comments


bottom of page