top of page

Þorskur í kókos chilli sósu

Ótrúlega góður fiskréttur sem hentar vel á hvaða degi sem er eða þegar þú ert að bjóða fólki í mat. Chillí olían setur algjörlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.


Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Hagkaup þar sem þú færð allar vörurnar sem ég er að nota.


Innihald

800 - 1000 g þorskbitar

2 dósir kókosmjólk

1 msk ólífuolía

1 laukur

2-3 hvítlauksrif

15 g ferskt engifer

1 ferskur chillí

1 tsk sykur

1 fiskiteningur

salt

ferskt kóríander (má sleppa)

chillí olía

niðursneiddur vorlaukur

1 límóna


Þú byrjar á því að skera laukinn og hvítlaukinn smátt niður og steikja upp úr olíunni. Svo bætir þú engiferinu og chilliinu út á pönnuna ásamt því að rífa smá límónubörk út á. Kókosmjólkinni er hellt út á pönnuna ásamt einum fiskiteningi, þetta látið malla í um 20 mínútur.

Ég tók fræin úr chilliinu en það er mun sterkara að hafa fræin með. Ég var með eina venjulega kókosmjólk og aðra létt kókosmjólk en það má vera hvernig sem fólk kýs helst.


Þorskurinn er saltaður örlítið og svo raðað út á pönnuna, hitað við miðlungs hita í um 10 mínútur.


Á meðan fiskurinn er að eldast er tilvalið að sjóða hrísgrjón. Ég var einnig með tilbúið brokkolísalat og sætkartöflusalat frá Hagkaup.


Þegar fiskurinn er borinn fram og settur á diskinn er kóríander og vorlaukur settur yfir ásamt því sem límóna er kreist yfir. Rétturinn er svo toppaður með chillí olíunni.


Ég hélt að þetta yrði of sterkt fyrir krakkana með ferska chillíinu og setti því nokkra fiskibita í kókosmjólk í lítið eldfast mót inn í ofn. En það reyndist vera óþarfi því þau kláruðu réttinn af pönnunni með chillíinu.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comentários


bottom of page